Launafl byggir fjölbýlishús við Breiðamel á Reyðarfirði

Jónas Þorsteinsson starfsmaður Launafls tekur fyrstu skóflustunguna.
Jónas Þorsteinsson starfsmaður Launafls tekur fyrstu skóflustunguna.

Launafl byggir tveggja hæða fjölbýlishús við Breiðamel 1-9 á Reyðarfirði. Um er að ræða 11 íbúðir sem verða bæði 80 m2 og 90 m2. Tvö svefnherbergi verði í minni íbúðunum og þrjú í þeim stærri ásamt geymslu í sameign.

Fyrsta skóflustungan var tekin 11. júlí sl. og er áætlað að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar seinnipart árs 2025.