Í blikksmiðju Launafls eru fagmenn í hverju rúmi, m.a. blikksmiðir og vélvirkjar. Smiðjan er vel tækjum búin en þar er m.a. að finna 3 m klippur, 3,0 m beygjuvél og plasmaskurðarvél (róbot). Verkefnin eru allt frá einfaldri fínsmíði upp í loftræstisamstæður af flóknustu gerð.
Helstu verkefni
- Uppsetning, stilling og þjónusta við loftræstikerfi af öllum stærðum
- Ryðfrí smíði í iðnaði, s.s. vinnuborð
- Frágangur á járni og áli á húsum
- Smíði eldvarnarhurða
- Efnissala: Blikkplötur, loftræstirör, beygjur, síur o.fl